Samstag, Februar 23, 2008

Tapað - fundið

Veit ekki hvort thid hafid oft týnt ödrum eyrnalokknum í gegnum tídina en thad hefur mér thó nokkrum sinnum tekist... Er reyndar snillingur í thví!
Fyrir u.þ.b. 5 árum týndi ég eyrnalokki og vitid thid hvenaer ég fann hann? í gaer!!!
Var í fríi í gaer og tók svefnherbergid m.a. í gegn. Ekki thad ad ég hafi ekki tekid til í skápnum í 5 ár en alla vegna fann ég eyrnalokkinn á skápbotninum...thad fyrsta sem blasti vid mér eftir ad ég tók upp handtösku sem lá líka á botninum. Eyrnalokkurinn! Ég held reyndar ad ég hafi verid med thessa handtösku thegar ég týndi eyrnalokknum. Kannski hann hafi einhvers stadar kraekst í töskuna?
Týndi fyrir nokkrum mánudum ödrum eyrnalokki....spurning hvort ég finn hann eftir 5 ár. Efast reyndar um thad...thví midur.

Um sídustu helgi fórum vid til Geislingen og Metzingen í áttina ad Stuttgart. Vid keyptum ný hnífapör hjá WMF (eda Auerhahn) og Michael keypti sér jakkaföt hjá Boss í Metzingen. Ég keyti mér ekkert thar enda var allt of mikid af fólki. Alltof mikid kradak. En Michael er alla vegna komin med almennileg jakkaföt fyrir ferminguna (vona ad okkur verdi bodid - ekkert formlegt bod komid enn). Ég á nú sennilega eitthvad til ad vera í...og svo var ég ad panta mér skó. Vona ad theyr komi fljótlega og passi! Eru reyndar sumarskór but so what...hérna í Baejaralandi er spád 18 grádum á morgun og 15 hérna í Augsburg....og sól og blídu!!! Vorlaukarnir í gardinum eru farnir ad springa út og thetta er ekkert grín. Reyndar koma fyrstu laukarnir yfirleitt snemma en thetta er nú med fyrsta móti. Kannski ég taki mynd af thessu á eftir og skelli á netid...aldrei ad vita :-)

Í dag aetlum vid ad skella okkur í sund og líklegast út ad borda á eftir. Fór annars út ad borda fjóra daga í röd thessa vikuna (sunnudag til midvikudags) en thad er nú frekar undantekning en regla. Var líka tvisvar sinnum bodid...einu sinni af vinnunni og í hitt skiptid borgadi tengdó. Var ekki alslaemt thad... Yfirmadur okkar og forstjórinn budu okkur í deildinni út ad borda enda búid ad vera mjög mikid ad gera undanfarna mánudi og er enn. Býd svo spennt eftir thví hvort ad smá kauphaekkun komi i mars en hérna er gert starfsmat (eda hvad heitir thad á íslensku?) einu sinni á ári og kom thad mjög vel út. Madur faer nokkurs konar einkunnir í sundurlidudum flokkum (frá 1 upp í 5). Hvort thad hafi eitthvad ad segja hvort launahaekkunin verdi meiri en venjulega verdur ad koma í ljós. S.l. ár voru víst allir í deildinni daemdir jafnt og thví vildi nýi yfirmadurinn minn breyta enda er starfsfólkid misgott/misslaemt. Vona ad ég hafi graett á thví! Lítur reyndar út fyrir thad... Er samt ennthá ad líta eftir einhverju hérna í nágrenninu en hef ekki fundid neitt spennandi nýlega.
Góda helgi!

Sonntag, Februar 10, 2008

Hafnarfjörður í mars....

Er ekki alveg haett ad blogga Hrefna...hef bara verid löt undanfarid!
Vid höfum oftast farid í frí í mars sídan ég flutti hingad og verdur víst engin breyting á thví í ár. Ég var rétt í thessu ad borga flug online frá Frankfurt til Keflavíkur 14. til 24. mars en ég bókadi thad fyrr í vikunni fyrir okkur baedi. Er víst ekki mjög langt í thad. Nae eins og einni fermingu og nokkrum afmaelum en flýg tilbaka á afmaelisdaginn hennar mömmu. Vona ad hún fyrirgefi mér thad...verdum bara ad halda upp á thad um páskana!
Aldrei ad vita nema madur slái bara í smá afmaelisveislu á skírdag fyrir familíuna og nokkra vini. Er jú tvöfalt afmaeli! Vona ad thad verdi ekki margir úti um páskana...

Ad ödru leyti er ekki mikid ad frétta. Vid vorum í taeplega tveggja tíma göngutúr í dag enda frábaert vedur. Kannski ekki mjög hlýtt en sól og blída.
Höskuldur og börnin voru hérna um sídustu helgi og var mjög gaman ad fá thau í heimsókn.
Í thetta skiptid komu thau seint á föstudagskvöldinu og keyrdu til Frankfurt eldsnemma á sunnudagsmorgni. Höfdum sem sagt allan laugardaginn og skrapp ég med Guðrúnu adeins í búdir ;-) Hún keyti reyndar ekki mikid fyrir sig sjálfa heldur mest fyrir vinkonur sínar og eina fraenku! Og svo audvitad fyrir mömmu sína sem komst ekki med í thetta skiptid. Vid fórum svo nokkur saman út ad borda á sunnudeginum og budum fólki í mat á mánudeginum. Ég var svo í fríi á sprengidag en fyrirtaekid mitt er alltaf lokad thann dag. Michael thurfti aftur á móti ad vinna.
Vona ad thad lídi ekki svona langur tími í naesta blogg...hafid thad sem best.

 
Free Counter
Free Counter