Montag, August 25, 2008

Silfur!

Ég er audvitad búin ad fylgjast med handboltanum á ólympíuleikunum. Fagnadi vel og innilega á föstudaginn (sem betur fer) en thó ekki í hópi Íslendinga. Var víst minna haegt ad fagna í gaer thó ad thetta hafi verid frábaer árangur. Hefdi bara mátt vera adeins meira spennandi í gaer thó their hefdu tapad. En svona er lífid og engin skömm ad ödru saeti!

Thýskir fjölmidlar kvarta annars ef ekkert gull kemur inn á einum degi! Hvad á madur ad segja sem Íslendingur?!?! Vid erum ánaegd med silfur á 52 ára fresti!

Thetta er annars týpískur mánudagur. Var svo threytt thegar ég kom heim ad ég lagdist í rúmid. Sofnadi reyndar ekki. Er svo ad fara á dansnámskeid á eftir thannig ad threytan verdur ad hverfa í bili. Er varla ad nenna en madur verdur ad láta sig hafa thad. Thad er bara ad koma sér út úr húsi...

Og jú jú, er búin ad panta mér tvenn skópör. Sjáum til hvort thau passa...
Svo er Köben farin ad nálgast. Flýg 10.-12. september. Kannski madur geti skroppid á Strikid.

Bid ad heilsa í bili.

Sonntag, August 17, 2008

Tell me why I don´t like Monday...

Thá er fríid ad verda búid og vinna og aftur vinna framundan. Og...vakna klukkan 6 í fyrramálid (snökkt) :-( Er ekki alveg tilbúin í thad...en svona er lífid! Allt of margir mánudagar!

Thad var mjög fínt á Krít, sól og blída og um 30 grádur. Var yfirleitt smá vindur thannig ad thad var allt í lagi. Var helst í skodunarferdunum sem var allt of heitt. Heyrdi einu sinni talada íslensku en thekkti ekki fólkid. Thad var audvitad í verslunargötu í naestu borg :-) Keypti samt ekki neitt.

Annars er alveg hrikalegur tími framundan thar sem allar skóbúdirnar mínar á netinu eru komnar med nýjar vörur (uppáhaldsbúdin http://www.thelittleshoeshop.com/)... Er ekki búin ad panta neitt ennthá en thad er nú bara tímaspursmál held ég. Kreditkortid má ekki rykfalla!!! Er ordid langt sídan ég notadi thad sídast enda nota ég thad lítid hérna og notadi thad ekkert á Krít. Nota yfirleitt debitkortid og hradbanka. Hérna er kreditkort notad mikid minna en á Íslandi og vídast hvar í Evrópu. Veit ekki af hverju. Thad er t.d. yfirleitt ekki haegt ad borga matvörur med kreditkorti og sumar fataverslanir taka thau ekki heldur (en flestar held ég). Ein af uppáhalds fatabúdunum mínum tók ekki kreditkort fyrir nokkrum árum. Veit ekki hvernig thad er núna. Bid ad heilsa í bili.

 
Free Counter
Free Counter