Samstag, Dezember 23, 2006

Gleðileg jól!


Ætla að nota tækifærið og óska öllum gleðilegra jóla. Veit ekki hvort ég næ að hitta alla aftur þar sem ég fer af landinu á öðrum degi jóla, alla vegna ef veður leyfir!!! Lítur reyndar út fyrir það. Hefði verið til í að vera í nokkra daga í viðbót í rokinu og rigningunni en það verður sennilega að bíða til sumars. Aldrei að vita nema rigningin bíði eftir manni þá eins og í júní s.l.

Með jólakveðju,

Dísa

Sonntag, Dezember 10, 2006

Jólin koma

Nú er jólaskapid alveg ad koma eftir ad thad kólnadi adeins í gaer. Thad voru ennthá 15 grádur í München á föstudaginn og 12 í Augsburg en í gaer....kom smá snjókoma! Var frekar slyddukennt allt saman og nádi snjórinn ekki ad festast og breyttist í rigningu thegar lída fór á daginn. Í dag er svo thurrt og um 5 grádur, alveg fínt bara. Ekki of kalt og ekki of heitt. Thad er annars allt graent hérna og ekki langt sídan ad sídasta rósin blómstradi í gardinum hjá mér (ef hún blómstrar ekki bara enn).
Nú fer ad lída ad kaerkomnu jólafríi og nenni ég varla ad vinna thessa thrjá daga í vikunni. Er alveg komin med nóg í bili, ordin langthreytt á vinnu og nýjum vinnufélaga í deildinni. Hún er gjörsamlega ad gera mig gráhaerda. Byrjadi 2. nóvember og er sífellt med opinn kjaftinn (situr nokkurn veginn vid hlidina á mér!). Ég get talad mikid en hún er síkjaftandi, blótandi og bölvandi. Held hún sé ad gera fleiri vitlausa en mig. Vona ad hún staldri ekki lengi vid. Gerist ekki oft ad mér semur gjörsamlega ekki vid einhvern en thad er thannig med thessa...

Veit ekki hvort ég nae ad blogga meira fyrir jól...skrifa kannski nokkrar línur á Íslandi í fríinu. Aetti ad hafa tíma til thess. Hlakka til ad hitta ykkur öll. Kem 14. desember fyrir thá sem ekki vita.

Jólakvedja
Dísa "Stúfur"

Sonntag, Dezember 03, 2006

Tilviljanir

Stundum geta tilviljanirnar verid ótrúlegar.
Fór í hádegishladbord í tilefni af 1. desember í gaer (var reyndar 2. des en thad er aukaatridi!) med Íslendingafélaginu í München. Thad voru reyndar ekki mjög margir en thó um 15 manns. Maettu víst bara thrír í fyrra! Vid fórum med trodfullri lest frá Augsburg og vorum heppin ad fá saeti. Thad thurftu flestir ad standa en thad voru margir á leidinni á fótboltaleik í München hladnir bjór o.s.frv.
Og viti menn...allt í einu heyrdi ég talada íslensku í lestinni. Var ekki viss í fyrstu en eftir ad ég sagdi vid Michael á thýsku ad ég héldi ad ég hefdi heyrt íslensku kinkadi önnur til mín kollinum. Thad voru sem sagt tvaer íslenskar konur sem voru á leidinni á hladbordid og búa bádar nálaegt Augsburg. Önnur er ad vinna og laera hérna í Augsburg og hin heimavinnandi húsmódir. Thaer eru bádar giftar Thjódverjum og búnar ad búa hérna í nokkur ár. Thad er sko ekki á hverjum degi sem madur heyrir íslensku hérna!
Annars var gaman ad hitta Íslendingana thó ad mér hafi ekki fundist hladbordid merkilegt. Vid fórum svo á jólamarkad á eftir en thad var allt of mikid af fólki. Marienplatz og göngugatan í München var trodfull af fólki! Madur thurfti bókstaflega ad ganga med straumnum svo mikill var trodningurinn. Svo var full heitt fyrir jólaglöggid (Glühwein) á markadnum! Thad er ennthá frekar hlýtt hérna á daginn, reyndar hlýrra í München en Augsburg í gaer. Er spád 16 grádum aftur á thridjudaginn. Skrítid jólavedur thad.
Byrjadi svo ad skreyta í dag enda ekki seinna vaenna á fyrsta í adventu.
Í kvöld aetlum vid svo ad kíkja á jólamarkadinn hérna í Augsburg.

 
Free Counter
Free Counter