Þá er madur kominn heilu og höldnu út aftur og vinnan hefst aftur á morgun. Verdur gaman ad vakna aftur kl. 6...eda thannig. Er gjörsamlega búin ad snúa sólarhringnum vid.
Ferdin gekk vel thrátt fyrir einhverja seinkun á flugi og eitthvad brösuglega byrjun í flugstöd Leifs Eiríkssonar.
Byrjudum á thví ad thurfa ad borga 9 kíló í yfirvigt sem ég hef aldrei lent í ádur. Voru sem sagt 4,5 kg of mikid á mann. Sluppum vid thetta á leidinni til Íslands en vorum ekki med mikid minna....mjög svipad. Og afgreidslustúlkan reyndi ad hugga okkur med thví ad vid hefdum thurft ad borga mun meira á kílóid med Icelandair en LTU. Mikil huggun í thví ;-)
Eftir ad hafa gengid klakklaust í gegnum tollinn aetludum vid ad ná í tollinn okkar (tax free) fyrir thad sem vid eyddum á landinu (þ.e. thegar ég gleymdi ekki ad bidja um thad í búdunum!). Hef hingad til alltaf getad fengid peninginn í Landsbankanum án fyrirhafnar ólíkt thví sem hefur tídkast á mörgum flugvöllum í heiminum en vard fyrir vonbrigdum med thjónustuna í thetta skiptid... Thad er bara ordid opid yfir daginn til ad ná í taxinn en madur getur borgad med hluta af tax-free nótunum í snyrtivöru-/nammibúdinni á vellinum. Ekki samt med öllum nótunum thar sem thad eru a.m.k. tvenns konar tax-free kerfi í gangi. Og ekki nóg med thad heldur fékk ég mismunandi upplýsingar í Landsbankanum (gjaldeyrisskiptin voru opin) og í búdinni med hvada pappírum madur gaeti leyst út taxinn í búdinni. Flókid??? Nei finnst ykkur thad... Endadi med ad ég borgadi í búdinni med annari nótunni og setti hina í póst. Michael setti tvaer af sínum nótum í tvo mismunandi póstkassa, önnur átti ad fara til Finnlands og hin Íslands! Mátti ekki setja nóturnar í sama kassa... En vid eigum alla vegna ad fá peninginn inn á kreditkortid okkar.
Ekki nóg med taxann heldur voru thó nokkrar búdir lokadar á vellinum. Sumar opnudu reyndar kl. 23 en adrar voru lokadar allan tímann.
Nógu er flugstödin ordin flott en vantar örlítid upp á ad ég hafi verid ánaegd med thjónustuna. Madur aetti kannski alltaf ad fljúga eldsnemma á morgnana...eda er madur e.t.v. ordinn of kröfuhardur eda of dekradur? Thad er spurning.