Sonntag, November 26, 2006

Út að borða...

Thá er enn einni "vorhelginni" ad ljúka hérna. Vedrid var mjög fínt en nú er hitinn kominn í 0 grádur en thad kólnar töluvert á naeturnar.
Vid skruppum í dýragardinn í München í dag og var mikid um ad vera. Ad ödru leyti var helgin róleg en vid leyfdum okkur ad fara út ad borda báda dagana...ekki mikid eldad á thessum bae um helgina! Fórum á kínverskan stad í gaer og lentum í hladbordi og á ítalskan í dag. Á morgun er svo stefnan ad borda heima...sem verdur víst bara tvisvar hjá mér thessa vikuna. Er ad fara út ad borda med nokkrum í vinnunni á spaenskan stad á midvikudaginn en vid höfum farid nokkrum sinnum thangad. Alveg frábaer stadur....og mikid af hvítlauk!!! Thad er svo aedisleg sósa "ali oli" til thar sem kemur frá Menorca (eyja rétt hjá Mallorca) og er borin fram med braudi fyrir matinn. Maeli med henni...á uppskriftina ef einhver hefur áhuga. Aetli Michael fordist mig ekki thegar ég kem heim?!!!
Fae víst ad sofa adeins lengur út tvo daga í vikunni en tharf thá ad vinna lengur. Er kannski ekki svo gódur kostur en thad er alltaf unnid til ca. 10 um kvöldid sídasta dag mánadarins. Skiptumst á thví í deildinni thó ad thad vilji verda thannig ad sumir vinni oftar lengur en adrir...
Og jólaskapid laetur enn bída eftir sér. Kannski kemur thad á adventunni? Aetla rétt ad vona thad! Jólamarkadurinn í Augsburg byrjar á morgun og thykir hann einn af theim betri hérna. Thad eru thó nokkrir í vinnunni sem fara árlega til Augsburg til ad heimsaekja hann. Á jólamarkadnum er haegt ad kaupa alls konar jóladót, mat og jólaglögg en thad eru margir markadir ad byrja núna vídast hvar í Thýskalandi.

Samstag, November 18, 2006

Er vorið komið???

Thad er víst kalt á Íslandi thessa dagana. Hérna hef ég adra sögu ad segja. Hér er búid ad vera vorvedur í nóvember! í Thýskalandi fór hitinn sumsstadar um og yfir 20 grádur s.l. fimmtudag. Labbadi út í matartímanum og thurfti ad fara úr kápunni í sólinni. Var stuttermabolsvedur! Í dag er eitthvad kaldara en milt, 12 grádur (í plús) eins og er og skýjad. Ekki audvelt ad komast í jólastemningu í thessum hita. Eru víst bara 5 vikur til jóla! Og taepar 4 thangad til ég kem til landsins og enn hefur enginn bodid mér í lifrarpylsu! En alla vegna fae ég pönnuköku og hamborgara! Hlakka til ad koma og líka til ad komast í smá frí frá vinnu. Er ekki allt of gód stemningin í vinnunni thessa dagana, thví midur. Thad er almenn óánaegja med ýmsa hluti og er sem betur fer fundur hjá deildinni minni á mánudaginn. Veit samt ekki hvort thad breytir einhverju, kemur í ljós... Thad er líka kvídi í sumum thar sem ein er ad koma aftur eftir "veikindi". Hefur verid skrifud veik frá thví í febrúar en hún hefur verid kraef í einelti eda "mobbing". Er líklegast ástaedan fyrir thví ad hún er búin ad vera "veik". Svo á hún bara ad koma aftur eins og ekkert hafi gerst...

Var ad taka ad mér thýdingu á íslenskum samningi um daginn. Kemur í ljós hvernig gengur med thad en thad eru víst ekki svo margir hérna sem kunna íslensku. Thad var fyrrum samstarfskona mín sem bad mig um thetta, veit samt ekki nákvaemlega hvernig mér á eftir ad ganga med thetta. Thetta er í annad sinn sem ég tek ad mér ad thýda texta en í fyrra skiptid var thad grein úr Mannlífi, m.a. vidtal vid mann sem býr hérna í Augsburg. Hann frétti af mér í gegnum optiker hérna í Augsburg sem vissi af mér og hefur komid til Íslands...

Ad ödru leyti er afmaeli og bíó framundan í dag. Fraendi hans Michaels er 7 ára og kíkjum vid thangad í kaffi og kökur (eda mat). Svo er víst aetlunin ad fara í bíó á thýska gamanmynd í kvöld. Man einhver eftir Ottó myndunum??? Sá thaer í bíó á Íslandi fyrir 20-25 árum! Thetta er víst einhver álíka della med sama leikaranum. Heitir dvergarnir sjö. Er framhald af annarri mynd sem ég reyndar hef ekki séd ennthá...Laet thetta duga í bili.

Sonntag, November 12, 2006

Þjóðlegur í útlöndum

Thad er ótrúlegt hvad madur getur ordid thjódlegur á ad búa í útlöndum. Í dag hlustadi ég á geisladisk med íslenskum lögum (Óskalögin 5) med lögum frá 8. og 9. áratugnum sem ég kannski hlustadi ekki mikid á thegar ég bjó á Íslandi. Átti reyndar ekki alla diskana sem ég á núna thá...
Svo er madur audvitad alltaf stoltur thegar Ísland kemur í fréttunum og svona.
Sídast thegar ég sá Ísland í adalfréttatímanum hérna á ríkissjónvarpinu var stoltid reyndar eitthvad beggja blandid en thad voru hvalveidarnar. Hef hingad til ekki haft skodun á hvalveidum en held ad Íslendingar séu ad gera mistök med thví ad hefja thaer ad nýju. Er ekki ennthá verid ad reyna ad fá túristana til landsins? Faer frekar neikvaeda umfjöllun hérna. En nóg um thad...

Hver heldur upp á 1. desember á Íslandi (fyrir utan háskólann kannski)? Í München er farid út ad borda árlega í tilefni ad 1. des. og svo er audvitad alltaf haldid þorrablót. Hef meira ad segja hitt Íslendinga á þorrablóti í München sem voru ad blóta þorrann í fyrsta sinn! Aldrei farid á þorrablót á Íslandi, ekki thad ad ég hafi farid á mörg. Er ekki mikid fyrir hvalkjöt, súrt slátur, hrútspunga og svid....hefur aldrei verid minn uppáhaldsmatur. Vaeri samt alveg til í lifrarpylsu thegar ég kem til landsins í desember. Býdur mér einhver í slátur??? (þ.e. bara í lifrarpylsu, ekki blódmör). Mamma er víst haett ad búa til slátur, veit ekki med braedur mína og mágkonur.

Helgin hefur annars verid róleg hjá mér. Michael fór í sína árlega vínsmökkun í gaer og keypti birgdir fyrir árid! Kom líka med gott súkkuladi og aedislega osta handa mér og gott pestó til ad hafa med ítölsku pasta. Já madur getur ekki alltaf verid thjódlegur!!! En stundum.

Dienstag, November 07, 2006

Morgunstund gefur gull í mund?

Hver fann upp thetta ordtak? Thad var alveg örugglega ekki ég!!!
Thad er alveg ótrúlega erfitt ad vakna á morgnana eins og er (eda kannski bara alltaf...) enda ordid dimmt úti, thó ad ekki sé eins mikid myrkur og á Íslandi. Tharf ad dröslast á faetur klukkan rúmlega sex inn á bad, illa útsofin og úrill... Og svo fer ég af stad um sjö og er komin ca. klukkutíma seinna í vinnuna. Thá eru nokkrar (alla vegna tvaer) á skrifstofunni búnar ad vinna í klukkutíma! Koma fyrir sjö á morgnana en opinber vinnutími byrjar klukkan sjö, thad thýdir ad thú getur ekki stimplad thig inn fyrir thann tíma. Samt eru thaer oft komnar fyrir sjö og gefa nokkrar mínútur af frítíma sínum...sem ég myndi örugglega nýta í svefn!!!
Á kvöldin er thetta svo allt annad mál. Tharf ad pína mig í háttinn til ad vera ágaetlega hress daginn eftir. En madur verdur víst ad láta sig hafa thad! Verd ad reyna mitt besta ad gera ordtakid í fyrirsögninni ad mínu!!! Alla vegna 5 daga vikunnar...

Sonntag, November 05, 2006

Mamma mia!

Er komin heim frá London en tíminn leid allt of hratt! Vid komum seint 1. nóvember og var ekkert mjög gaman ad fara í vinnuna á fimmtudeginum en svona er thetta bara.
Fór á söngleikinn Mamma mia og var thad alveg meiriháttar. ABBA diskurinn er búinn ad vera í graejunum alla helgina! Maeli med honum fyrir alla thá sem fara til London.
Annars var thad thannig í ferdinni ad Michael sá um menninguna og ég um innkaupin ;-) - thó sérstaklega í The little shoe shop... Madur getur misst sig alveg í verslununum í London, ekki erfitt... Thrátt fyrir allt saman var Michael med miklu thyngri tösku en ég - bádar leidir!!! Eru thad ekki alltaf vid stelpurnar sem tökum meira med okkur??? Eda erum alla vegna med meira á leidinni tilbaka eftir ad hafa notad kreditkortid óspart??? Thad er víst ekki thannig hjá okkur. Og í thokkabót voru baekurnar sem Michael keypti í handfarangri....mesti thunginn í theim...
Vid fórum svo í risaparísarhjólid London-Eye. Thad var alveg meiriháttar útsýni en thetta er í annad skiptid sem ég fer í hjólid. Í fyrra skiptid (árid 2002 held ég) lokadi ég augunum og hélt mér fast, í fyrra fór Michael svo einn. Núna var ég ekkert hraedd og gat notid ferdarinnar. Var líka heidskírt thennan dag. Vorum annars alveg ótrúlega heppin med vedur. Thad rigndi ekki einn einasta dag og hana nú!!! Fyrstu dagana voru meira ad segja um 17-18 grádur. Vid lentun svo á midvikudagskvöldid í tíma fyrir fyrsta naeturfrostid hérna í Augsburg. Hefur heldur betur kólnad en á víst ad hlýna adeins aftur eftir helgi.
Í gaerkvöldi fórum vid svo med thremur ödrum á Honky-Tonk Night en thad er haldid í knaepum vítt og dreift um Augsburg. Madur borgar einu sinni 10 evrur í adgang og röltir svo um pöbbana. Thad eru hljómsveitir ad spila og vída allt of mikid af fólki fyrir minn smekk...

 
Free Counter
Free Counter