Þjóðlegur í útlöndum
Thad er ótrúlegt hvad madur getur ordid thjódlegur á ad búa í útlöndum. Í dag hlustadi ég á geisladisk med íslenskum lögum (Óskalögin 5) med lögum frá 8. og 9. áratugnum sem ég kannski hlustadi ekki mikid á thegar ég bjó á Íslandi. Átti reyndar ekki alla diskana sem ég á núna thá...
Svo er madur audvitad alltaf stoltur thegar Ísland kemur í fréttunum og svona.
Sídast thegar ég sá Ísland í adalfréttatímanum hérna á ríkissjónvarpinu var stoltid reyndar eitthvad beggja blandid en thad voru hvalveidarnar. Hef hingad til ekki haft skodun á hvalveidum en held ad Íslendingar séu ad gera mistök med thví ad hefja thaer ad nýju. Er ekki ennthá verid ad reyna ad fá túristana til landsins? Faer frekar neikvaeda umfjöllun hérna. En nóg um thad...
Hver heldur upp á 1. desember á Íslandi (fyrir utan háskólann kannski)? Í München er farid út ad borda árlega í tilefni ad 1. des. og svo er audvitad alltaf haldid þorrablót. Hef meira ad segja hitt Íslendinga á þorrablóti í München sem voru ad blóta þorrann í fyrsta sinn! Aldrei farid á þorrablót á Íslandi, ekki thad ad ég hafi farid á mörg. Er ekki mikid fyrir hvalkjöt, súrt slátur, hrútspunga og svid....hefur aldrei verid minn uppáhaldsmatur. Vaeri samt alveg til í lifrarpylsu thegar ég kem til landsins í desember. Býdur mér einhver í slátur??? (þ.e. bara í lifrarpylsu, ekki blódmör). Mamma er víst haett ad búa til slátur, veit ekki med braedur mína og mágkonur.
Helgin hefur annars verid róleg hjá mér. Michael fór í sína árlega vínsmökkun í gaer og keypti birgdir fyrir árid! Kom líka med gott súkkuladi og aedislega osta handa mér og gott pestó til ad hafa med ítölsku pasta. Já madur getur ekki alltaf verid thjódlegur!!! En stundum.
5 Comments:
Já ég get trúað því að maður verði pínu Þjóðlegur þegar búið er í útlöndum :) hef samt ekki prufað að búa úti...
Ég get ekki boðið þér í almennilegt slátur vinkona ;) nema jú bara SS lifrapylsu :)
Hlakka til að sjá þig í desember!!! :D
10:11 AM
Vid fáum okkur bara hamborgara í stadinn...á stælnum...eda hvad???
5:38 PM
Já!! hvort við gerum :)
við verðum að viðhalda vananum stelpa ;) ohhhh svo verðum við að fá okkur eins og svo oft í gamla daga svona pönnuköku á Nýja Kökuhúsinu.... NAMMMMI! langt síðan ég hef fengið mér svoleiðis :)
9:27 AM
Endilega...alltaf til í pönnsu á Nýja kökuhúsinu...med hvítlaukssósu eda hvad?! ;-)
5:34 PM
Jámm með hvítlaukssósu.... *slef* Við VERÐUM að fá okkur svoleiðis!! :D
9:05 AM
Kommentar veröffentlichen
<< Home