Frí vegna óveðurs...
Hver kannast ekki vid thá tilfinningu thegar madur mátti fara fyrr heim úr skólanum eda vera bara heima vegna vedurs? Sú tilfinning kom upp í manni í dag thar sem ad starfsfólkid í vinnunni hjá mér mátti fara heim kl. tvö í dag vegna óvedurs! Á kostnad vinnunnar ad sjálfsögdu. Var ad vísu nokkud lengi á leidinni heim thar sem ad nokkrir vörubílar eda tengivagnar fuku út af veginum enda keyra their eins og bavíanar. Alls ekki midad vid adstaedur.
Thad er gert töluvert vedur úr thessu óvedri hérna enda á thad ad versna sem á lídur daginn og fram á kvöld/nótt. En aetli Íslendingar myndu kippa sér upp vid svona laegd? Held ég hafi upplifad nokkrar slíkar bara í desember s.l. Mér finnst verst med öll trén, er helst hraedd um ad greinar fjúki á mann eda eitthvad drasl. Thad er audvitad ekki eins slaemt á Íslandi enda ekki eins mikid af trjám.
Thad versta er ad vid aetludum út ad borda saman úr vinnunni í kvöld en frestudum thví. Verdur ad bída í viku.
Nú er thad spurning hvad madur gerir núna: taka til eda lesa Konungsbók eftir Arnald Indridason...?!
Eitt er allavegna víst: Hef góda afsökun til ad fara ekki í líkamsraektina í kvöld... (eins og svo oft ádur sko). Er ordin ansi gód í ad styrkja stödina fjárhagslega án thess ad maeta. Verdur ad fara ad breytast!
1 Comments:
hæhæ
gott að heyra að þú ert óhult í veðurofsanum sem búinn er að ganga yfir þýskaland!
já ég skil þig vel með líkamsræktina.. hehe. ég hef verið dyggur stuðningsmaður Baðhússins í marga mánuði en ekki farið :/ skil ekki hvað er að manni hehehe.
er reyndar laus við það núna eins og er og ætla mér ekki að detta í þá gryfju aftur.. (segi ég núna allavegana) ;)
hafðu það gott og ég bið að heilsa!
kveðja
Hrefna
1:40 PM
Kommentar veröffentlichen
<< Home