Montag, Januar 01, 2007

Gleðilegt ár 2007!

Gledilegt ár 2007 og takk fyrir thad gamla!
Hérna var allt frekar rólegt. Vorum í bodi hjá vinafólki í Friedberg rétt hjá Augsburg, fyrrum heimabae Michaels. Thau búa svo til á móti tengdó enda kíktu foreldrar Michaels adeins vid um midnaetti. Vorum ca. 10-15 med tveimur börnum. Var sprengt á midnaetti en ekkert í líkingu vid hvad er heima á Íslandi! Vid komum svo heim milli 3 og 4 og er madur búinn ad vera í leti í dag, enda ekki vid ödru ad búast. Er svosem ekki thynnkunni fyrir ad fara (alla vegna ekki hjá mér) thar sem ég var bílstjóri. Áramótavedrid hérna var vonum framar enda var búid ad spá rigningu og roki (já...kannist thid vid thad???). Rokid kom svo ekki fyrr en seint í nótt/morgun en var nú ekki svo slaemt held ég. Ekki fyrir vanan Íslending! Var líka mjög heitt hérna í nótt eda tólf grádur á maelinum okkar. Aetli thetta sé ekki ein af laegdunum sem voru á Íslandi nýlega.
Í kvöld er svo matur hjá tengdó og á morgun vinna (geisp). Verdur álíka gaman ad vakna og í sídustu viku. Var svo sem allt í lagi í vinnunni en ad koma sér á faetur...thad var allt annad mál! Og kallinn liggur í rúminu og sefur...thats not fair!!! Hann tharf ekki ad vinna fyrr en 8. janúar. Verd ad finna verkefni fyrir hann...thad thyrfti nú ad taka til hérna, skúra o.s.frv. ;-) Thad er spurning... Alla vegna betra en ad hanga í tölvunni, alla vegna fyrir mig!

2 Comments:

Anonymous Anonym said...

Gleðilegt ár sömuleiðis og takk fyrir það gamla. Það var ótrúlega gott veður hjá okkur um áramótin og rosalega mikið sprengt!!

12:01 AM

 
Anonymous Anonym said...

Gleðilegt ár vinkona!!
Já úff hvað það var erfitt að vakna í morgun!
Áramótin okkar voru róleg en yndisleg engu að síður :)
Mamma kom, tengdapabbi og systir Þrastar og borðuðum við kalkún og sprengdum upp gamla árið :) geggjað útsýnið hjá okkur!! ;)
Svo fóru systir og pabbi Þrastar um tvö minnir mig og mamma gisti þannig að þetta voru róleg og góð áramót ;) enda gott fyrir konu í mínu ástandi.. hehe ;)
Knús til þín og Michael og ég vona að ég hitti þig meira þegar þú kemur næst kæra vinkona!

9:03 AM

 

Kommentar veröffentlichen

<< Home

 
Free Counter
Free Counter