Mittwoch, Oktober 25, 2006

Vetrarþankar í hitabylgju

Thad eru víst ekki nema tveir mánudir til jóla!!! Skrítid ad hugsa til thess thar sem ad thad er spád 26 grádum hérna í Bæjaralandi á morgun! Madur er ekki beint med hugann vid jólasnjó og kulda. Getur víst allt gerst hratt og sídasti vetur var langur. Jóladótid er nú thegar komid í búdirnar...er líklegast ekki ödruvísi á Íslandi eda hvad? Aldrei ad vita nema madur kaupi svo jólagjafir í naestu viku í London...verdi snemma ad thessu í ár (einmitt!!!). Er ekki thekkt fyrir ad vera sú fyrsta med gjafainnkaupin thó ad ég hafi aldrei (svo ad ég muni) keypt gjafir á adfangadag. Addi bródir var í theirri deild. Var oft ordin stressud thegar vid gáfum eitthvad saman og Addi átti ad sjá um innkaupin. En thad reddadist nú alltaf...og mamma og pabbi fengu sinn pakka. Klikkadi ekki!!!
Naestu skrif verda eftir London...

2 Comments:

Anonymous Anonym said...

Hæ hæ Dísa mín :)
já vá er svona hiti hjá ykkur??
Hér er aðeins kaldara... hehe
Fyrsti snjórinn, eða það var meiri svona slydda lét sjá sig í gærkvöldi. Ég er alls ekki til í snjó fyrr en í fyrsta lagi í desember takk!!! En ég verð að viðurkenna að það var nú ansi huggulegt að liggja uppí sófa í nýja húsinu og sjá slyddusnjóinn kastast til og frá við ljósastaura birtuna :)
Ég undirbjó mig að það yrði hálka í morgun og var búin að blikka Þröst að keyra mig í vinnuna ef það yrði, en það var hálkulaust og spáð hlýnandi þannig að það er bara gott mál! Ég þarf samt að fara að drífa mig að setja nagladekkin undir bílinn og parkera sumardekkjum....
Ohhh þið eruð að fara til London á laugardaginn!!!!!!! ég væri meira en til í að vera að fara memm sko ;) og já versla jólagjafirnar snemma bara þetta árið hahaha.. yeahh right!!
Reyndar erum við búin að kaupa allar jólagjafir fyrir börn! Jább, það var svaka fín útsala í Leikbæ í sumar og við bara kláruðum yngri kynslóðina.. gott framtak það ;)
Skemmtið ykkur vel í London elsku vinkona, og við heyrumst þegar þið komið til baka!
Luv, Hrefna

10:05 AM

 
Anonymous Anonym said...

Hæ skvís, velkomin heim frá London :) ég vil fara að sjá London-pistil hérna ;)
knús Hrefna

1:34 PM

 

Kommentar veröffentlichen

<< Home

 
Free Counter
Free Counter