Adventa og jólamarkadur
Thá er adventan byrjud og mest allt jólaskrautid komid upp. Vid (eda réttara sagt Michael!) settum upp jólaseríuna um sídustu helgi og svo verdur kveikt á fyrsta kertinu í kvöld. Adventan er svipud og á Íslandi. Thad er kveikt á kertum á adventukransi o.s.frv. Thad eru fá adventuljós í glugga enda held ég ad thetta sé sidur frá Gydingum.
Vid erum búin ad fara einu sinni á jólamarkadinn en adallega til ad borda. Thad er haegt ad fá ýmislegt gódgaeti og jólaglögg af ýmsum gerdum. Thad er alltaf fullt af fólki thar sem ad glöggid er selt og er ágaett ad fá sér eins og einn bolla ef thad er kalt úti. Annars fer ég frekar á markadinn til ad fá mér ad borda eda kíkja á dótid sem er selt. Thad er ýmislegt til sölu en audvitad drasl inn á milli...
Í gaer keypti ég svo fyrstu jólagjöfina í ár og pakka fyrir litlu jólin sem eru á föstudaginn. Vid drögum mida um thad hverjum vid gefum pakka og er thad alltaf höfudverkur hvad madur á ad gefa. Fer audvitad eftir thví hversu vel madur thekkir vinnufélagana.
14. desember er svo jólahladbordid fyrir allt fyrirtaekid og er thad yfirleitt vel úti látid. Missti af thví í fyrra en thá var thad á Hard Rock Café í München. Núna er thad ekki langt frá vinnunni og adeins naer Augsburg. Nae sem sagt ad skreppa kvöldid ádur en ég flýg til Íslands en flugid er í eftirmiddaginn thannig ad thad er allt í thessu fína. Verd heldur ekki fram á nótt en thad eru ýmsir sem halda oft lengi út. Ég hef aldrei verid med theim sídustu enda hef ég alltaf thurft ad koma mér tilbaka til Augsburg, annad hvort "bílandi" eda med lest.
Aetla núna ad skella jóladúkunum og adventukransinum á bordid...
Óska ykkur gledilega adventu!
0 Comments:
Kommentar veröffentlichen
<< Home