London, Baden-Baden, Augsburg....Hafnarfjördur
Thad er víst ordid ansi langt sídan ég bloggadi sídast. Hef víst enga góda afsökun fyrir thví. Eru annars til gódar afsakanir? Eda bara pennaleti í thessu tilfelli.... Madur á annars ad skrifa thegar mann langar til en ekki af skylduraekni...finnst mér.
Vid flugum til London í 5 daga 3. til 7. október og lentum í rjómablídu. Kom ekki dropi úr lofti og var mjög hlýtt. Vid sáum m.a. tvo söngleiki "We will rock you" og "Avenue Q". Thad var mjög gaman en fannst "Mamma mia" fyrir ári mun betri en "We will rock you". "Avenue Q" er med brúdum en leikararnir sjást samt á svidinu. Mjög skemmtileg sýning en ekki endilega fyrir börn thó ad thetta sé brúduleikhús. Brúdusöngleikur fyrir fullordna. Svo skrapp madur adeins í The little shoe shop... og í nokkrar adrar búdir ;-) Keypti dýrustu stígvél lífs míns í svona nokkurs konar "Frusteinkauf" sem madur getur thýtt sem innkaup thegar eitthvad ergir mann eda madur verdur fyrir vonbrigdum med eitthvad... og kaupir svo eitthvad kannski til ad baeta skapid. Sé samt ekki eftir thví, sem betur fer.
Fór svo smá tími í menninguna: The London Tower og British museum.
1.-4. nóvember skruppum vid svo til Baden-Baden í Svartaskógi og vorum thar líka í nokkud gódu vedri. Var adeins kaldara en í London en mjög fínt. Vid fórum í nokkrar (heitar) sundlaugar thar og röltum um Baden-Baden og Karlsruhe sem er tharna rétt hjá. Thar sem ég gleymdi ad taka passann minn med fórum vid ekki til Strasbourg í Frakklandi sem er heldur ekki mjög langt frá. Á thad til ad gleyma blessudum passanum en vid thurftum ad snúa vid í mars s.l. til ad ná í passann fyrir Vínar ferdina. Er víst öruggara ad vera med passann thegar madur yfirgefur landid. Hérna eru yfirleitt ekki heitir pottar í sundlaugunum en thad voru nokkrir í Baden-Baden. Thessar laugar eru mun dýrari en venjulegar kaldar sundlaugar. Thad er lúxus ad fara í heitar laugar hérna í Thýskalandi.
Svo bordudum vid audvitad gódan mat á kvöldin en ég elska matinn tharna.
Naesta ferd á dagskrá er svo Hafnarfjördur 15. desember til 1. janúar. Flýg tilbaka ad morgni 1. janúar kl. 8:00!
Ad ödru leyti hefur thessi helgi verid leti helgi. Gaerdagurinn fór reyndar í hreingerningar hjá mér og Michael fór í sína árlegu vínsmökkun í München. Nenni ekki ad smakka vín í heilan dag. Thad er too much fyrir mig. Undir lokin finnst mér öll vín svo vera eins á bragdid...... Hef annars verid ad hugsa um thad um helgina hversu gott thad vaeri ad vera med skúringarkonu. Aldrei ad vita nema madur leyfi sér thad á nýju ári 2008!
Vedrid hérna um helgina hefur ekki bodid upp á mikid meira en leti (og hreingerningar!) enda var snjókoma og rok í gaer og rigning og rok í dag. Á morgun á svo held ég ad vera snjókoma og rok. Neydist víst til ad yfirgefa heimilid á morgun... Sendi nokkur laegd/laegdir hingad frá Íslandi?!?!?
Í vinnunni er allt svo sem vid thad sama. Vid erum komin med nýjan yfirmann en thad hefur ekki reynt ennthá á thad hvernig hann er. Er samt ad leita ad ödru og helst hérna í Augsburg. Thá gaeti ég kannski sleppt skúringarkonunni....eda skrifar madur skúringakona án "R"?
0 Comments:
Kommentar veröffentlichen
<< Home